|
Góðir vinir og kunningjar
|
03.09.2007 13:57:35 / gunnsaj
»
29.08.2007 10:37:43 / gunnsaj
Mikid rosalega var gaman ad hitta foreldra mína í Berlín. Við tókum túristapakkann á þetta og skelltum okkur í ofur-sætsín með bátdferð og öllu saman. Pabbi gekk um allt með kortið og glápti á öll götuskilti og mamma hélt því fram að við værum að fara einhverja bölvaða vitleysu alla ferðina. Hvort þetta hafi verið ferð til fjár veit ég ekki en ég nádi þó að versla heldur betur í H&M en týndi símanum mínum fyrir vikið Svo þó ég hafi náð að kaupa mér sokka, nærur og boli á spott prís þarf ég að kaupa mér nýjan síma dýrum dómum. Ég held að ég sem með mjög slæmt ferðalaga-karma, ég lendi alltaf í einhverju bölvuðu veseni eða hremmingum. En Berlín var æði og einn góðan veðurdag mun ég halda þangað á ný. Draumurinn eftir allt þetta ferðalag mitt er að komast á interrail og ferðast um alla Evrópu með bakpoka, ég held að það sé sjúklega gaman. Ég auglýsi hér með eftir ferðafélaga! Við Pabbi náðum alveg helling af myndum svo ég mun setja nokkrar myndir inn hvað og hverju svo "stei tjúnd" Kv. Víðförli
»
22.08.2007 17:00:23 / gunnsaj
Oooooo, já, lestin er ad fara... lestin er ad fara... já hún leggur upp í kvöld, hún keumur vid í hverju landi.... (sálin hans Jóns míns) Ég er sko ad fara í lest eldsnemma í fyrramálid Lest til Saltzburg og tek svo flug thadan til Berlín, thar sem ég mun hitta foreldra mína. Kem svo bara heim eftir nokkra daga  Mig dreymir heim um dimmar kaldar naetur, mig dreymir heim til thín, ó, módir kaer... (tólfti september)
»
20.08.2007 12:16:29 / gunnsaj
Hver kannast ekki vid thetta lag Thad er svo merkilegt undanfarid med svona lagstúfa sem ég hef fengid á heilann, their tengjast alltaf thví sem ég er ad gera. Eins og til daemis um daginn thegar ég fór á sjóbrettid glumdi laglínan "I can't bearly stand on my feet" úr laginu somebady to love med Queen, aftur og aftur í höfdinu á mér ( ég nádi heldur ekki ad stadna í labbirna (standa mig ). Á laugardagkvöld fór ég svo í partý í voda flottu húsi, alveg eins og ég ímydadi mér ad svona greifar búi í. Vid fórum á bátnum, thví thad er greinilega ekkert sérlega töff lengur ad renna í hlad á Audi A8. Thegar allir voru reddí í ad fara og taekkla nokkur dansspor var audvitad farid á fína spíttbátnu í baeinn, thá haetti ég ekki ad raula "on the boat again" (sbr. on the road again) og núna eru thurmur og eldingar svo bara giskidi hvad ég er ad söngla núna  Thunder, úhh, lightning ... lallaa úú, é é, you better knock knock knock . . . on wood !!!
»
16.08.2007 20:46:40 / gunnsaj
Ég bara mátti til ad skella inn einni stuttri faerslu. Í dag var
nefnilega svolítid merkilegur dagur, vika sídan ég kom og fyrsta
heimthráin lét á sér bera. thannig var nú thad, hún kom alveg aftan
ad mér. Ádan fengum vid nefnilega Ítali í mat og svo kom einnig
systir húsmódurinnar med stelpurnar sínar. Vid matarbordid var
adallega tölud ítalska í bland vid smá thýsku, mjög erfitt ad
fylgjast med. Eftir matinn ákvad ég ad skreppa adeins upp í
herbergi í smá pásu thegar thessi líka heimthrá skall yfir eins og
hvirfilbylur. Ég ákvad thá ad skella bara smá Bjögga á fóninn og
grenja í koddann minn. Mikid var thad gott
»
14.08.2007 19:15:42 / gunnsaj
Fjórir dagar lidnir og ég ekki búin ad eyda krónu eda evru öllu
heldur. Ég lifi algjöru lúxus lífi, ég tharf ekki ad elda, thvo né
strauja, adeins ad passa lillu fyrir hádegi, ryksuga e-d lítid og
svo kannski hjálp vid ad taka af bordinu, minna en ég bjóst vid
fyrir meiri pening en ég bjóst vid. Slagordid mitt "komd'út í plús"
(stolid ég veit) á sko vel vid.
En burt séd frá öllum skilduverkum thá er thetta naer eintóm
skemmtun hér í Klagenfurt. Ég er búin ad kynnast naer allri
fjölskyldunni, börnum, mökum, vinkonum, fraenku, maka fraenku
og jafnvel gullsmidnum ad ógleymdum fyrrverandi eiginmanni
húsmódurinnar. Litlu ádur en ég kom hingad út hafdi
húsbóndinn, Gerald Hehenberger, fest kaup á einu stikki spíttbát
og undanfardid hafa fjölskyldu medlimir verid ad aefa sig á
sjóskídum og sjóbrettum og á morgun mun ég prufa í fyrsta skipti
Ég mun pottthétt setja inn myndir af thví thegar ég kemst í tölvuna
mína. Thannig er mál med vexti ad ég bý í tveimur húsum, einu svona
venjulegu, kannski adeins í staerri kanntinum, einbýlishúsi í
huggulegu hverfi í Klagenfurt og svo í mjög saetu "litlu" húsi vid
vatnid (á staerd vid gott radhús) thegar vedrid er gott .
Undanfarid hefur verid bongó blída, hiti rétt taepar 30°c og
léttskýjad svo hér höngum vid vid vatnid og gerum okkur gladan dag
á bátnum og syndum í vatninu. Thad vill svo óheppilega til ad ég
skildi tölvuna mína eftir í stóra húsinu svo ég get ekki sett
neinar myndir inn strax, mér thykir thad leitt.
En Siggi svo ég svara spurningu thinni thá verda baedi húsin aud
9. september thar sem vid aetlum ad skella okkur í smá frí til
Ítalíu, jééééhh. Thú getur bara flett Geraldi Hehenberger upp á
ja.is og slegid svo á thrádinn til hans, hann tekur pottó vel í
thetta 
»
10.08.2007 16:24:58 / gunnsaj
Nú loksins hef ég ákvedid ad láta verda ad thví ad troda inn
nýrri faerslu á thessa vinsaelu sídu Fyrir thá sem ekki hafa
tekid eftir tví ad mig vanti á Klakann, vil ég benda á ad líta í
kring um sig og opna augun fyrir theirri stadreynd. Thannig er nú
mál med vexti ad thann 9.ágúst vaknadi ég um midja nótt, hafdi mig
til, ók út á flugvöll og tékkadi mig í fyrstu vél til London, en
leidinni var heitid til Klagenfurt í Austurríki. Allt gekk eins og
í sögu thar til ég plús 45 önnur kíló lentum adeins of seint á
Stansted flugvelli í London og aetludum ad tékka okkur inn í flug
med ryan-air, SHIT!!! Fyrst var mér tjád ad thad vaeri haett ad
tékka inn en ef ég gaeti verid snögg yrdi mér hleypt inn og einmitt
thar byrjadi ballid. Thar sem ad ferdataskan mín var 33kg mátti
ekki tékka hana inn, adeins 32kg leyfileg, come on. Ég reddadi
thessu med ad opna hana, taka tvö pör af skóm úr henni og setti í
handfarangur, 82 farin thar fyrir 17kg af yfirvigt. Úff ég var
sloppin Ó, NEI HÓSEI Thegar ég aetla ad flýta mér í gegnum
öryggishlidid tharf ég ad taka fartölvuna upp úr töskunni minni og
vigta svo töskuna, sem reyndist 11,8 kg en adeins 10 kg leyfileg í
gegn. Ég vard ad gjöra svo vel ad losa mig eitthvad af thessu ef ég
aetladi ad ná vélinni. Í öllu hvaríinu henti ég 400g af íslenskum
lakkrís, frábaerri bók um Austurríki sem kostadi mömmu mín 3.400kr
og thessari líka ágaetis hlidartösku minni sem ég hafdi
medferdis, Bömmer. Eftir thetta var taskan enn örlítid of thung svo
ég vard ad fara aftur og losa mig vid e-d, í thetta sinn fyllti ég
bara jakkavasana mína af myndavél, iPod, síma og veski og flaug í
gegn, kjánalegt? Thegar inn var komid og ég thurfti ad taka til
fótanna ef ég aetladi ad ná vélinni er ég stoppud og látin fara úr
skónum, týpíst. Eftir gott marathonhlaup fann ég "gata 41" og rétt
slapp afthví their vissu ad ég var á leidinni en allt kom fyrir
ekki, á öllum hlaupunum hafdi ég misst brottfararspjaldid mitt og
olli enn meiri töf á vélinni til klagenfurt. Ekki leid á löngu thar
til ég mátti gangu um bord í fylgd med öryggisverdi ryan-air.
SJÚKKET!!! Thad var óneitanlega ögn neydarlegt ad ganga um bord
thar sem allir voru sestir og spenntir í belti og bölvudu mér í
hljódi. En allt er gott sem endar vel og um hálf fimm leitid um
eftirmiddaginn lenti ég í Klagenfurt vid hlýjar móttökur, meira ad
segja madurinn sem skodaidi vegabréfid mitt skellti upp úr vid komu
mína thangad. Um kvöldid fékk ég svo fjórrétta máltíd med ALLRI
Napendschnig fjölskyldunni 
»
25.01.2007 07:51:17 / gunnsaj
Jólaskapið er svo sannarlega búið og
yfirþyrmandiskammdegisþunglyndið og niðurdrepandi hversdagsleikinn
tekinn við á nýjan leik. Ég veit ekki um ykkur en sjálf hef ég ekki
verið upp á mitt besta undanfarið og allir í kringum mig líka e-ð
"down". Afsakið mig ef ég er að mistúlka e-ð, en svona lít ég á
málið. Hvernig veit maður hvort maður sé metin af verðleikum eða
bara hvort maður sé einhvers virði yfir höfuð, jahh, maður spyr
sig. Einmitt þetta er eitt af mörgu sem hefur verið að íþyngja mér
að undanförnu. Á vinnufundi í gær kom fram hugmynd um að búa til
"Hróskassa", sem virkar svipað og póstkassi nema hvað þú gefur
einhverjum nafnlaust hrós sem þú skrifar á miða og setur svo í
kassann, og svo einn góðan veðurdag verður kassinn opnaður og öll
hrós lesin upphátt og sá sem þú gafst hrós þarf aldrei að vita að
það varst þú sem hrósaðir honum, sniðugt? Ég veit ekki. Þetta á
víst að peppa upp móralinn og vera jákvæð styrking, allir verða
vinir nema kannski sá sem fær ekkert hrós. Kannski ég fari að ganga
með minn eigin hróskassa svo allir þeir sem vilja geta hrósað mér
og þá finn ég kannski hvers ég er metin.
»
06.12.2006 23:55:13 / gunnsaj
Ágæti lesandi!
Ég biðst innlegrar afsökunar á vanrækslu þessa bloggsíðu og
óvirðingu gagnvart þér, kæri lesandi. Ég hef, síðustu daga,
algjörlega tapað sjálfri mér í "myspace-heiminum" og
því vanvirt skildu mína gagnvart ástkærum lesendum mínum.
Skóli og jólapróf eru reyndar góð ástæða þessa bloggkreppu og mikil
ritstífla hefur hrjáð undirritaða verulega að undanförnu, eins og
sést gaumgæfilega á seinustu færslu.
En hvað langar mig í í jólagjöf? Spurningum sem þessari rignir
yfir mig daglega og ég sé mér ekki annað fært en að einfaldlega
birta óskalistann á Veraldaaefnum svo ég geti tekist á við daginn
áreitislaust (kommon það hefur enginn spurt mig enn!!!) :
- Flygill
- Skór
- LCD sjónvarp (allavega 26")
- Trommulett - Ludwig
- bleika PS2 m/ Buzz og singstar
- Krystalsljósakrónu
- Verslunarferð til Ameríku
- Concord þotu
- Moon Boot (þessi ítölsku)
- Kápu
- Dansnámskeið + dansherra
- Plötusamning

- Andy Warhol bókina (risa stór)
- Heims Atlas
- Hnattlíkan
- Stjörnukíki
- nánast allt á www.urbanoutfitters.com (þá
úr dömudeildinni)
Þetta er svona það helsta en svo fyrir þá sem eru nískir eru
CD-diskar, vettlingar, sokkar, náttföt, eyrnalokkar og þetta ódýra
dót alltaf jafn kærkomið, bara að það hafi e-t notagildi 
Ykkar einlæg
Gunnhildur
»
23.10.2006 20:46:16 / gunnsaj
Ég verð að
viðurkenna það að mér hafa alltaf fundist umræður um veðrið
yfirborðskenndar og óspennandi. Þar sem ég bý í blokk og því
nær óhjákvæmilegt að mæta fólki þegar ég er ýmist á leiðinni
inn eða út, reyni þó að forðast það eins og heitan eldinn að
vera samferða einhverjum sambýlingum mínum með lyftunni til
þess eins að forðast þessar yfirborðskenndu og óþæginlega
aðstæður sem myndast á þessum stutta tíma í svo litlu rými og
oftar en ekki bregður fólk þá til þess ráðs að tala um veðrið
til að rjúfa þögnina. Guð hjálpi mér, hefur fólk ekkert annað
að tala um? En það er nú bara einu sinni þannig með
Íslendinga, þeir tala linnulaust um veðrið, hvernig það er,
verður og hefur verið. Hver kannast ekki við frasa á borð
við: ,,Það er nú blessuð blíðan”, ,,Ætli hann hangi þurr?”,
,,Djöfull blæs hann” og ,, Hann virðist ætla að
rigna”?Austurland að
Glettingi: Norðaustan 3-8 m/s, skýjað og víða
þokuloft. Hæg norðlæg eða breytileg átt á morgun, úrkomulítið
og fer að létta til síðdegis. Hiti 3 til 8 stig, en svalara á
morgun. Mér leikur einnig forvitni á að vita, fyrst
Íslendingar eru svona forvitnir um veðrið og
veðurspánna,
afhverju eru þá ekki mun fleirri að stunda nám í veðurfræði
við Háskóla Íslands? Mér skilst að þessa stundina sé enginn
að læra þetta fag uppi í Háskóla. Það er kannski ekki
spennandi að ljúga að heilli þjóð, spá þurru en, viti menn,
áður maður veit af þá fer að rigna, alveg eins og hellt sé úr
fötu. En það er
víst alveg satt að veðurfræðingar ljúga, það fullyrðir
Bógómíl Font í laginu ,,Veðurfræðingar”. Hann
lendir meðal annars í því að standa á stuttbuxunum í
hríðarbyl, getað baðað sig í þvottinum þegar ekki er von á
vætutíð í bráð og liggja í úlpu og lopapeysu í sólbaði niðri
í Nauthólsvík.
En þetta er, jú, bara veðurspá en engin staðfesting á hvað
koma skal.
»
07.10.2006 17:44:19 / gunnsaj
»
07.10.2006 14:39:32 / gunnsaj
»
30.09.2006 13:43:04 / gunnsaj
Yfirlit
SSV af Írlandi er víðáttumikil 985 mb lægð sem þokast A og
grynnist, en 1000 mb lægðasvæði er við Hjaltlandseyjar. Langt S af
Hvarfi er 1032 mb hæð. Yfirlit gert 30.09.2006 kl. 12:04
Veðurhorfur á landinu
Veðurhorfur til kl. 18 á morgun: Norðaustanátt, víða 5-10 m/s.
Dálítil væta sunnan- og austanlands en annars úrkomulítið og léttir
til suðvestan- og vestanlands í kvöld. Hægviðri á morgun og
léttskýjað að mestu á sunnan- og vestanverðu landinu, en skúrir við
suðurströndina. Annars skýjað að mestu en þurrt að kalla. Hiti 5
til 13 stig, hlýjast sunnan til og heldur svalara á morgun. Spá
gerð 30.09.2006 kl. 12:30
Veðurhorfur til kl. 18 á morgun:
Spá gerð 30.09.2006 kl. 12:28
Suðurland
*Hæg norðaustlæg eða breytileg átt og smáskúrir. Norðan 5-8 m/s í
kvöld og léttir til, en hægviðri á morgun og stöku skúrir allra
austast. Hiti 8 til 13 stig en svalara í nótt.
Faxaflói
*Norðaustan 5-10 m/s og léttir til síðdegis. Hægviðri og léttskýjað
á morgun. Hiti 8 til 12 stig, en 1 til 6 í nótt.
Breiðafjörður
Norðaustan 5-10 m/s og skýjað með köflum. Hægviðri á morgun og
léttskýjað að mestu. Hiti 4 til 9 stig.
Vestfirðir
Norðaustan 3-8 m/s, en hægviðri á morgun. Skýjað að mestu og hiti 3
til 8 stig.
Strandir og Norðurland vestra
Norðaustan 3-8 m/s, en hægvðri á morgun. Skýjað og víða þokuloft
við ströndina. Hiti 3 til 8 stig.
Norðurland eystra
Norðaustan 3-8 m/s, skýjað og víða þokuloft. Hæg norðlæg eða
breytileg átt á morgun, úrkomulítið og fer að létta til síðdegis.
Hiti 3 til 8 stig, en svalara á morgun.
Austurland að Glettingi
Norðaustan 3-8 m/s, skýjað og víða þokuloft. Hæg norðlæg eða
breytileg átt á morgun, úrkomulítið og fer að létta til síðdegis.
Hiti 3 til 8 stig, en svalara á morgun.
Austfirðir
*Norðaustan 5-13 m/s, hvassast á annesjun. Rigning eða súld, en
dregur úr úrkomu í nótt. Norðan 3-8 á morgun og skýjað. Hiti 5 til
10 stig, en svalara á morgun.
Suðausturland
Norðaustan 5-10 m/s og rigning eða súld, en hæg breytileg átt
vestan Öræfa. Norðaustan 3-8 á morgun og skýjað með köflum, en
skúrir vestantil. Hiti 8 til 13 stig.
Miðhálendið
Norðaustan 5-10. Dálítil rigning eða súld með köflum, en léttir til
vestantil í kvöld. Hægviðri og skýjað með köflum á morgun. Hiti 0
til 5 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á mánudag: Hæg suðlæg átt. Skýjað og smásúld sunnan- og
vestanlands en léttir heldur til fyrir norðan og austan. Hiti 5 til
10 stig. Á þriðjudag og miðvikudag: Suðaustanátt, yfirleitt 5-10
m/s. Rigning sunnan- og vestanlands, en skýjað með köflum og þurrt
norðaustanlands. Hiti 8 til 13 stig, en 0 til 5 stig
norðaustanlands að næturlagi. Á fimmtudag: Austlæg átt og
víða dálítil súld eða skúrir, síst þó norðvestan og vestantil.
Kólnar í veðri. Á föstudag: Hægviðri og úrkomulítið. Hiti 3
til 8 stig.
»
27.09.2006 11:51:44 / gunnsaj
Sögutímar hafa alltaf vakið áhuga minn á ferðalögum og framandi
slóðum. Grikkland hið forna, Krít og Knossos; Rómaveldi, saga þess,
byggingaalist og tala nú ekki um allt fræga fólkið á þeim tímum. En
því miður er ég nokkrum árum of sein að hitta á Sesar, Ágústus og
Kleópötru, Seif, Póseidon og Herakles. En saga 203 er málið, nú er
heitasta heitt að fara á vertíð.
Annars er svona efst á döfinni að klára skólann og þegar það er
búið ætla ég að fara til Afríku, Ástralíu og Fiji.
»
21.09.2006 13:41:51 / gunnsaj
Mikið er frábært að vera komin aftur í skóla! Allt komið á flug
og nokkur próf afstaðin með prýðiseinkunum Áhugi minn á
bókmenntum hefur stóraukist, reynt á færni mín í stærðfræði og
tala nú ekki um þýskukunnáttu mína. En það er þó einn kennara minna
sem hefur tekist það ómögulega, það að gera Brennu-Njálssögu að
dauðadómi, þvílík synd. Ég var með kennara sem var rekinn sokum
drykkju, en hann var algjört æði og svo áhugasamur um söguna,
kannski sökum ölvunar. Svo kom nýr maður að kenna okkur tímabundið,
hann mætti með víkingahjálm og sverð í fyrsta tíma, c.a. 2m á
hæð, dökkur yfirlitun, réttnefjaður, vel vígur og drengur
góður. Hann fór aðallega með okkur í mannlýsinga og hvarf svo bara
á braut. Svo einn daginn mæti ég í tíma og sé hvar þessi kvensnift
stendur við kennaraborðið og veit hvað snýr upp eða hvað snýr niður
hjá Njáli og fjölskyldu. Þetta er algjör skandall að hafa svona
kennara í þessum áfanga! Hvað getur maður gert til að losna við
kennara? Farið með honum á fyllerí?
»
Síður: 1 2 3 ... 7
|
|